TILRAUNAELDHÚS INGU
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 28122
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
24.01.2010 21:10:50 / tilraunaeldhus

Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi

Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi

Þessi snilldarkaka er ,,samsoðningur,,  úr tveimur kökum sem ég sá í matgæðingatímaritinu ALLT OM MAT sem ég kaupi reglulega hér í Sverige.  Hver biti er eins og konfektmoli – bakið og njótið

BOTNINN

4 dl kókos

1 dl hrásykur

½ dl ljós síróp

1 msk gæða kakó

1 msk hveiti

4 meðal stór egg

Ofninn hitaður í 175. Öllu blandað varlega saman og sett í smurt lausbotna form –eða setjið bökunarpappír í lausbotna form.  Bakað í um 20 mín eða þar til fallega gyllt.  Kælt. 

 

SÚKKULAÐIBRÁÐ

225 gr suðusúkkulaði

100 gr fíkjusúkkulaði (súkkulaði með fíkjufyllingu t.d. Marabou)

1 -1 ½ dl rjómi

1 msk hunang

1 msk smjör

Allt er þetta brætt saman og hellt yfir vel kældan botninn.  Kælið í um 5-6 tíma

 

FERSKFÍKJUSÍRÓP

6 ferskar fíkjur

1 dl hrásykur

1 dl vatn

Smá cayunpipar  (e smekk) gefur alltaf svo skemmtilegt sterkt eftirbrað J

Fíkjurnar skornar í tvennt og kjötið tekið úr og setti í pott með sykrinum, vatninu og piparnum og soðið í 2-3 mín. 

SÍRÓPIР er borið fram með getur hver og einn fengið sér að vild Punkturinn yfir I er svo smá sletta af rjóma


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 17:35:14 / tilraunaeldhus

Flutt blogg

Er að vinna að því að flytja bloggið á www.tilraunaeldhus.blog.is því þar get ég haft myndir - en samt eru margar góðar á þessu bloggi þannig að gott að kíkja á bæði :)
En til að byrja með þá verð ég með á báðum stöðum - en myndir fyrir þá sem eru á þessu nýja :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2009 18:38:37 / tilraunaeldhus

Hreindýrastrimlar í villisveppasósu með sítrónu- og timjankeim

Hreindýrasteik - nammmm - mig hefur langað lengi að elda hreindýr.  Nú í dag sá ég hreindýrastrimla - bita í kjörbúðinni og þá var komið að því.  Léttsteikt, fljótlegt og aldeilis sérdeilis gott. :haha: 

Sveppablanda steikt í smjöri. 
Hreindýrastrimlar léttsteiktir á pönnu í smjöri, salti og pipar.
Sýrðum rjóma, timjan og rifnum sítrónuberki bætt útí.  Eða tilbúinn sýrður rjómi með sveppa - timjan og sítrónubragði frá Arla (fæst víst bara í Svíþjóð:cry:)
Kantarellukraftur smá dass.
Svartur pipar

Með þessu hafði ég heimsins bestu kartöflumús og lingon sultu

Heimsins besta kartöflumús:

Alltaf gaman að leika sér með kartöflumús og setja hana í mismunandi búning.  Að þessu sinni var ákveðið að steikja beikonbita/teninga, rifa niður ostaafganga og ritz kex.  Alveg ljómandi.  

Sem sagt:
5 soðnar kartöflur  
slatti af steiktu beikoni
fullt af rifnum osti
Ritz kex - mulið rétt rétt í lokin og hrært saman við
smjör
mjólk
pipar



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2009 06:57:05 / tilraunaeldhus

Steikt eggaldin með parmaskinku og parmesan osti

Þetta er gómsætur forréttur sem rennur svo ljúft - er bestur rétt kominn af pönnunni

Eggaldinið er skorið í þunnar sneiðar - langsum - á sko að vefja það upp eftir kúnstarinnar reglum ;).  Það er svo steikt í olíu með smá hvítlauk þar til fallega gullið báðum megin en má ekki verða stökkti. Mér finnst best að láta hvítlaukinn bara rétt í lokin og ekki við mikinn hita leyfa honum rétta að ,,bráðna,, með - rétt í lokin -- til að forðast að hann verði beiskur ;)

Tekið af pönnunni og parmaskinka svipað stór lögð ofaná og svo rifinn parmesan ostur þar ofaná.  Smá nýmulinn svartur pipar.  Rúllað saman og fest með tannstöngli.  Graslaukur (passa að hann sé ekki trénaður/grófur þá er svo erfitt að binda) er bundinn utanum og tannstöngullinn tekinn  og WHALA kominn er sætur eggaldinsparmaskinkuparmisanpakki.  Ég myndi gera nóg - því þetta rennur svo ljúft niður en eins og ég sagði áðan er þetta best nýsteikt. 

Ekki er verra að hafa smá hvítt eða rautt með

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2009 22:27:50 / tilraunaeldhus

hot garlic chili sauce


Mín eigin hot garlic chili sauce - mun betri og ferskari en sú sem maður kaupir út í búð 

1/4 bolli fish sauce
1/3 bolli rice vinegar
2  rauð chilli  
6  stórir hvítlauksgeirar - saxaðir
2  msk. organic Agave syrup

Chillið er fræhreinsað og saxað smátt niður sem og hvítlaukurinn.  Allt saman sett í pott og soðið um stund saman
Geymist í um 1-2 vikur í ísskáp




» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2009 18:04:30 / tilraunaeldhus

guðdómleg fíkjusulta með limekeim


Langaði svo í góða fíkjusultu svo ég skellti í pott

250 gr fíkjur - þurrkaðar
2 msk Muscovado sykur
1 1/2  lime bæði safi og smá börkur (auðvitað - bara þetta græna :))  

Vatn látið nokkuð vel yfir fíkjurnar og látið sjóða um stund - sykrinum bætt útí og áfram soðið í smá stund - eða þar til sykurinn er bræddur.  bætið vatni í ef ykkur finnst sultan ætla að verða of þykk - á ekki að vera þykk :)

Tekið af hellu og látið kólna smá.  Þá er limesafanum og berki bætt útí og töfrasprotinn látinn mauka í dásamlega sultu. 

Snilld með ostum og já bara öllu ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2009 19:55:17 / tilraunaeldhus

Marsala-hunangsperur með Gorgonzolaosti að hætti Nigellu

Einn af mínum uppáhaldsréttum úr töfraheimum Nigellu.  Eðalostabakki eins og þeir gerast bestir.:d
Var með þennan rétt í ítölsku 7 rétta matarboði sl sumar og þá með sætu eftirrétta hvítvíni - nauðsynlegt með þessu.   Þá var ég með hann sem millirétt en hann passar hvar sem er í matarboðið eða við hvert tækifæri sem á að hafa huggulegt.  Búin að tala mikið um þennan við vini og vandamenn sem og bjóða mörgum þeirra upp á þetta gómsæti og var því knúin til að setja þessa uppskrift á bloggið mitt.  En þessi uppskrift er fengin hjá Nigellu vinkonu minni eins og áður sagði.  Ég styðst við hana en slumpa eins og alltaf :$ Mér finnst betra að hafa meira af Marsala og hunangi.

2 msk af olífuolíu (ekki jómfrúarolíu)
2-3 perur afhýddar, kjarninn fjarlægður og skornar í báta
3 msk Marsala eða portvín
2 msk hunang
50 gr valhnetukjarnar
500 gr Gorgonzola-ostur velþroskaður (eða annar mygluostur en Gorgonzola er auðvitað bestur með þessu)
Smá sjávarsalt (þarf ekki en mér finnst það betra svona rétt yfir í lokin)

Olían hituð á stórri pönnu og skornar perurnar settar á í 3 mínútur á hvorri hlið.
Marsla og hunangi blandað saman og síðan á pönnuna með perunum þegar þær eru fallega gylltar og látið sjóða í smá stund.  Þær eru svo teknar af og settar á disk til hliðar. 
Valhneturnar settar á pönnuna í saman við safann og steikt í smá stund - þar til safinn er farinn að ,,karamellast,, um hneturnar.  Setjið þær á diskinn með perunum og Gorgonzola-ostinum og smá salt yfir.  
 
Gott að bera fram með góðu hvítvíni og baguette eða góðu hrökkbrauði  

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2009 18:49:12 / tilraunaeldhus

Pizza með lauksósu og geitaosti (hvítum)

Elska föstudaga - þá skelli ég oftast í pizzu.  Hef mikið stúderað pizzur og hef prófað margar góðar. En þessi er snilldin einasta hehehe fyrir þá sem finnst geitaostur góður.  Reyndar passar lauksósan með mörgu öðru áleggi en afar vel með geitaosti :)

Pizzabotn
500 gr hveiti/spelt
2 tsk salt
10 gr ferskt ger
325 ml volgt vatn
eða bara sá botn sem þér þykir bestur :lol::lol:

Lauksósa
2 msk olía
3 stórir laukar
1 dl balsamik edik
3 msk púðursykur
slatti nýmalaður pipar
1 tsk cajan pipar

Soðið saman í um 30-40 mín eða þar til alveg mjúkt, með lokið á pottinum.

Pizzasósa
1 dós niðursoðnir tómatar 
2 hvítlauksgeirar
1 lúka ferskt basil
pipar
og salt
Aðeins látið malla í potti og mixað með töfrasprota

Hvítlauksolía
2 dl ólífuolía
4 hvítlauksrif
handfylli af ferskri steinselju

Olían hituð í potti og potturinn síðan tekin af.  Hvítlaukur marinn og settur út í olíuna - olían má alls ekki vera of heit því þá verður hvítlaukurinn beiskur og það er ekki gott:(.  Hann á eiginlega að bráðna rólega í olíunni þegar hann er hrærður saman við hana.  Steinselja sett í í lokin. 

Deigið flatt út, pizzasósan sett í þunnu lagi ofaná og síðan lauksósan - bakið í ofni  220 gr heitum ofni 10 mín, takið út og setjið skífuskorinn geitaost eða annað álegg ofaná og bakið áfram þar til osturinn er bráðnaður  

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2009 17:31:17 / tilraunaeldhus

Meðmæli - Herre GUD

Mæli enn og aftur með víetnömskum hollustuvefjum (sjá neðar) - er búin að gera þær nokkrum sinnum núna í öllum gestaganginum sl mánuði og viti menn þær slá alltaf í gegn

Marinering á nautakjötið hefur tekið nokkrum breytingum og samanstendur nú af sesamolíu - hrísgrjónaediki - fiskisósu - wasabi - chili - lime safa - sesamfræjum - kóríander og hunangi  -  Bara svona smá slumbutilfinning
Best að hafa í marineringu í nokkra klukkutíma

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2009 19:49:01 / tilraunaeldhus

Miðausturlensk veisla

Vinur minn ættaður frá Ísrael kom eitt sinn færandi hendi til mín með uppskriftabók frá sínu heimalandi, THE FOOD OF ISRAEL/Authentic recipes from the land of milk and honey.  Ég hef mikið skoðað hana og stúderað en ekki haft mig í að kokka eitthvað uppúr henni fyrr en nú um daginn þegar ég fékk svo indæla og skemmtilega gesti sem hafa gaman að því að smakka og útbúa framandi mat. 

Mig hefur lengi langað að gera Falafel.  Nýsteikt falafel......nammm.....með hummus.....


Falafel kemur upphaflega frá Egyptalandi en er mikið á borðum í öllum Miðausturlöndunum. Uppskriftirnar eru með margvíslegu ívafi en megin uppistaða þeirra er maukaðar kjúkingabaunir eða aðrar ljósar mjölmiklar baunir sem kryddaðar eru eftir efni og aðstæðum í hverju landi fyrir sig.  Falafel er venjulegast vafið inn í pitubrauð með humus og afar gott er að láta Tahina (sósa úr sesamfræmauki og sítrónu) sósu fylgja með.  Mér finnst sjálfri gott að hafa með tómata bakað/steikt eggaldin, pickels og smá sýrðan rjóma. 

Falafel
500 gr kjúklingabaunir (ekki forsoðnar/úr dós)
2 meðal laukar
8 hvítlauksrif
1 búnt steinselja
1/2 búnt koríander
2-4 rautt chilly fer eftir þori og gæðum
2 tsk cummin (ekki kúmen)
S&P eftir smekk
1 msk lyftiduft
1 msk matarsóti

Kjúklingabaunir skolaðar og látnar standa í vatni yfir nótt.  Skolaðar aftur (hef prófað forsoðnar úr dós og það virkar ekki, verður alltof mjúkt og djúpsteikist ekki/verður bara að mauki).  
Baunir, laukur, hvítlaukur, steinselja, kóríander, cumin og S&P allt mixað saman með sprota eða matvinnsluvél. Bæta þarf vatni útí þar til allt er orðið að þykku mauki. 
  • Blandið svo lyftidufti og matarsóta útí og látið standa í um 30 mín. 

Hitið steikingarolíu í djúpum potti.  Hnoðið golfboltastórar kúlur úr öllu maukinu og steikið þar til gullinbrúnar.

Tahina sósa
180 ml thaini mauk (sesamfræmauk)
safi úr 1-2 sítrónum
2-3 hvítlaukar marðir
Salt e smekk
1 1/2 bolli söxuð steinselja
olífuolía on top

Tahini mauk og sítróna hrært saman þar til að léttri ljósri sósu - vatni bætt útí - á að vera þunnt
Hvítlaukur, salt og steinselja sett út í og hrært um stund (með sleif)
Smá olífuolíu helt yfir - sósa þessi geymist ekki vel í ísskáp og er best að gera rétt áður en matur er borinn fram á að vera við stofuhita.  

Hummus  
500 gr kjúklingabaunir
3 hvítlauksrif ekki pressuð
2 meðal laukar
3 hvítlauksrif
salt
100 ml tahini mauk
Sítrónusafi

Kjúklingabaunir settar í vatn yfir nótt. Skolaðar.  Soðnar með lauknum og hvítlauknum í um 4 tíma eða þar til þær eru alveg maukaðar.  Að suðu lokinni er umframvökva og lausu ,,hýði,, skolað burt og laukur og hvílaukur fjarlægð.  Maukaðar og salti, hvítlauk, tahinimauk og sítrónusafa blandað saman með mixer eða matvinnsluvél. Olífuolía on top. 

Eggaldin
Eggaldin skorin í þunnar sneiðar - sett í ofnskúffu á bökunarpappír með vel af salti og olífuolíu - bakað við góðan hita þar til gullið. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2009 08:15:39 / tilraunaeldhus

Engin venjuleg döðlukaka

Var með þessa í prjónaklúbb fyrir nokkru en gleymdi alltaf að setja hana inn - en er búin að fá nokkur símtöl síðan og gefið hana upp í gegnum síma þannig að nú bara læt ég hana vaða.  Fékk hana upphaflega í gestgjafanum.  (maður verður að geta heimilda ekki satt;))

235 g döðlur
1 tsk matarsódi
240 g smjör , mjúkt
5 msk sykur
2 egg
175 g hveiti
1/2 tsk salt
1 1/3 msk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
115 g púðursykur
4 msk rjómi


Setjið döðlurnar í pott með vatni svo að fljóti yfir og látið sjóða í 3 mín. Hrærið matarsódann út í með skeið þegar vatnið er aðeins farið að kólna. Hellið þessu í hrærivélarskál, bætið 120 g af smjöri, sykrinum, eggjunum, hveitinu, saltinu, lyftiduftinu og 1/2 tsk af vanilludropum út í og hrærið saman. Deigið á að vera eins og vöffludeig. Hellið því í eitt kringlótt form með háum börmum (gott er að nota smelluform) og bakið kökuna við 180°C í 30-40 mín. Setjið 120 g smjör, 1/2 tsk vanilludropa, púðursykur og rjóma í pott og látið suðuna koma upp. Látið malla í 3 mín. og hrærið stöðugt á meðan. Hellið sósunni yfir kökuna þegar hitinn er aðeins farinn úr henni eða berið hana fram með kökunni. Gott er að bera einnig fram þeyttan rjóma með.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2009 07:50:07 / tilraunaeldhus

kínverskar vorrúllur a la Inga

Ógleymanlega góðar vorrúllur.  Þetta er svo slump/tilfinningar-uppskrift og er vel þess virði að prófa. 

Fyllingin:
800 gr nautahakk
4 stórar gulrætur
4 nokkuð stórir sellerístilkar
1/2 hvítkálshöfuð
2-3 bollar rúsínur
stór biti engifer
3 hvítlauksrif
1 súputeningur
súrsæt sósa
garlic sósa
fiskisósa
svartur malaður pipar
Smá sykur ;)

Gulræturnar og engiferið rifið niður.  Sellerí og hvítkál saxað niður í mjóa strimla.  Öllu skellt í stóran pott og steikt.  Smakkað til með sósum.

Vorrúllupappírinn sem fyllingin er sett inní fæst í Nings Sælkerabúðinni og í verslunum innflytjenda víða um heim (hehe alla vega á Íslandi og í Svíþjóð:lol:

Fyllingin sett inní á neðri brún pappírsins og vafið inn og djúpsteikt við háan hita.  Leiðbeiningar fylgja yfirleitt pappírnum ;)

Borið fram með dipping sósu - súrsætri eða öðrum sætum austurlenskum sósum.  Brakandi ferskt og gott.  Verður eiginlega að borða strax.  

Ummæli gesta - Váááá þetta er ekkert smá hrikalega gott  

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 19:00:55 / tilraunaeldhus

Dásamlegt musli og ,,íslenskt,, skyr

Mig hefur alltaf langað til að gera mitt eigið musli.  Síðust helgi  var ég svo heppin að fá upp í hendurnar uppskrift að dásamlegu musli sem ég stílfærði aðeins.

3 bollar gróft haframjöl
1 bolli möndluflögur
1/2 bolli kókósmjöl
1/2 bolli graskersfræ
1/2 bolli kasjúhnetur
1/2 bolli pekan hnetur
1/2 sesamfræ
1 bolli rúsínur
smá sjávarsalt
1/2 bolli matarolía
1/2 hunang

Hita þarf ofninn áður upp í 165 gráður

Öllu nema rúsínunum hrært saman við og blandan sett í stóra ofnskúffu og bakað í 15 mín og aðeins hrært í á meðan.  Á að verða gullið/brúnt, þegar það er tekið úr ofninum þá er rúsínunum bætt útí.  Á  meðan það kólnar þá þarf að hræra aðeins í því, svo það klístrist ekki alveg fast.
Þetta er engin heilög uppskrift bara svona hugmynd af afargóðu musli svo það er um að gera að prófa sig áfram t.d. að setja smá kanel ef maður er í því skapi og aðra þurrkaða ávexti ef maður er á þeim buxunum.  Síróp í stað hunangs og þar fram eftir götunum.  En hafa ber í huga að það er best að setja olíu fyrst í bollamálið og svo hunangið því þá rennur hunangið svo létt úr bollanum og þannig verður ekkert eftir og ekkert klístur. 


Svo er það skyrið góða.  Þegar maður býr við skyrskort þá er ekkert um annað að ræða en að búa til sitt eigið og ekkert væl. 

Skyr

2 L af mild jógúrt (ég notaði eina létta og eina 3%)
3 msk sykur
1 bolli frosin hindber (eða bara eftir smekk)

Viskustykki sett ofaní sigti og jógúrtini hellt þar í.  Látið standa fyrir nótt í vaski eða djúpri skál svo mysan leki af.  Ég breiði alltaf viskustykki yfir svona just in case :lol:

Svo er það bragðbætt að vild með sykri og berjum.

Geymist ágætlega í ísskáp.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 18:54:38 / tilraunaeldhus

karrý-kjúklingur einfaldur og fljótlegur

Tók til í ísskápnum fyrir helgina og kom saman þessum fína kjúklingarétt sem er eins einfaldur og hægt er og svakalega góður. 

1 kg frosið spínat
1 1/2 msk svartur pipar
1 1/2 msk karrý  eða  meira man ekki alveg :lol:
1 1/2 msk paprikuduft
1 1/2 msk sykur
sjávarsalt

1 1/2 peli rjómi
1 dl vatn
5 hvítlauksrif  
2 rauðlaukar
1 kg kjúklingabringur
1 poki furuhnetur

Steikti spínatið í olíu og bætti kryddinu útí og steikti áfram um stund
Bætti rjómanum útí og hvítlauk og lét malla um stund

Kjúklinginn setti ég í eldfast lokað form og 2 rauðlaukar skronir yfir og sósan svo yfir og inn í ofn í 1 klukkutíma.  Einfaldara verður það varla. 

Borið fram með hrísgrjónum, nanbrauði og hvítvíni
Allir sáttir - börn sem fullorðnir. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2009 09:49:57 / tilraunaeldhus

Satay kjúklingur


6 kjúklingabringur
Kjúklingurinn er skorinn í bita og svo settur í eggjahvítu og svo í majesenamjöl - þá myndast svona góð húð á honum - steikt á funheitri -pönnu í olíu þar til fallega gullinbrúnn

4 laukar

10 hvítlauksrif (ekki risastór)
1 stór þumall engifer
1/2 Chilli  - eða eftir þori og smekk hvers og eins - svo eru chilli auðvitað svo mismunandi
ÞETTA ER HAKKAÐ SMÁTT OG STEIKT, BRÚNAÐ í potti


Svo er bætt út í

4 stórir tómatar saxaðir

1 búnt koriander saxað
3 lime (safinn og kjötið)
1 dós kókosmjólk
1 dós satay sósa
3 msk hnetusmjör
3 msk sykur
Jarðhnetur saxaðar settar útí lokin
Salt og pipar eftir smekk

Gott er að láta sósuna malla lengi lengi við lágan hita (jafnvel hægt að malla daginn áður)
Steikti kjúklingurinn er svo settur útí í lokin og svo 1 ½  bolli saxaðar 
salthnetur
settar í áður en maturinn er borðinn fram 

Með þessum rétt er ég alltaf með hrísgrjón og nýbakað nanbrauð og salat





» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill